Hellnar
Bílastæði
Áningabekkir
Útsýnispallur
![](https://snaefellsjokull.is/wp-content/uploads/2023/09/IMG_2911-768x576.jpg)
Á Hellnum var áður sjávarþorp. Ströndin skartar fallegum bergmyndunum og bjargi sem skagar í sjó fram og kallast það Valasnös. Þar er hellirinn Baðstofa og eru litbrigði í hellinum mjög breytileg eftir birtu og sjávarföllum.
![](https://snaefellsjokull.vinnugrunnur.is/wp-content/uploads/2023/09/Hellnar.-Kristi-Blokhin.-shutterstock_1817483135-1024x683.jpg)
Kirkja var reist á staðnum um árið 1880 og núverandi kirkja vígð árið 1945 sem er útikirkja frá Staðarstað og hefur verið svo frá árinu 1917.
![](https://snaefellsjokull.vinnugrunnur.is/wp-content/uploads/2023/09/Bardarlaug-768x1024.jpg)
Vestan við veginn að Hellnum er Bárðarlaug.
Bárðarlaug var friðlýst sem náttúruvætti árið 1980 og er lítil sporöskjulaga tjörn í fögrum gjallgíg. Sagan segir að Bárður Snæfellsás hafi baðað sig í lauginni.
Gönguleiðir við þennan áningastað
1 klst
500 m
2,5km
Krefjandi
Arnarstapi – Hellnar
Lagt er af stað frá bílastæði í nágrenni við Lambhagatjarnir. Gamla þjóðleiðin þaðan og út á Öndverðarnes liggur um Nesgötu.
10 mín
500 m
300m
audvelt
Bárðarlaug
Lagt er af stað frá bílastæði í nágrenni við Lambhagatjarnir. Gamla þjóðleiðin þaðan og út á Öndverðarnes liggur um Nesgötu.