Djúpalónsandur 

Bílastæði
Aðgengi fyrir fatlaða
Áningabekkir
Útsýnispallur

Djúpalónsandur er rómaður fyrir sínar svörtu djúpalónsperlur, steinum sem sjórinn hefur slípað svo fallega. Þar er einnig að finna hin þekktu Steinatök sem eru fjórir steinir, Fullsterkur (154kg), Hálfsterkur (100kg), Hálfdrættingur (54kg) og Amlóði (23kg).

Í fjörunni má finna járnbrak sem er að mestum hluta úr enska togaranum Epine GY-7, sem strandaði austur af Dritvíkurflögum í mars 1948.

Ofan við Djúpalónsand er útsýnispallur aðgengilegum hjólastólum með frábæru útsýni.

Bílastæði og salerni eru upp við þjóðveg. Minna bílastæði er ofan við Djúpalónsand. Um 2 km gönguleið liggur um hraunið frá efra bílastæði niður á Djúpalónsand.

Frá Djúpalónsandi liggur gönguleið yfir í Dritvík. Frá því um miðja 16.öld og fram á miðja 19.öld var þar stærsta og fengsælasta vorútver landsins.  Úr Dritvík réru oft 40-60 skip með 200-600 vermönnum. Sjá má minjar þurrabúða sem voru í víkinni, en þær voru allt að tíu þegar flest var. Allt neysluvatn þurfti þurrarbúðarfólk að sækja í lónin á Djúpalónssandi. Nokkrar minjar, fiskbyrgi, fiskgarðar og fleira eru einnig í hraunjöðrunum.

Minjar við Dritvík.

Gönguleiðir við þennan áningastað

2-3klst
500 m
6 km
Krefjandi

Djúpalónssandur – Einarslón – Malarrif

Lagt er af stað frá bílastæði í nágrenni við Lambhagatjarnir. Gamla þjóðleiðin þaðan og út á Öndverðarnes liggur um Nesgötu.
20 mín
500 m
1 km
Krefjandi

Djúpalónssandur – Dritvík

Lagt er af stað frá bílastæði í nágrenni við Lambhagatjarnir. Gamla þjóðleiðin þaðan og út á Öndverðarnes liggur um Nesgötu.
1,5 klst
500 m
3 km
Krefjandi

Dritvík – Sandhólar

Lagt er af stað frá bílastæði í nágrenni við Lambhagatjarnir. Gamla þjóðleiðin þaðan og út á Öndverðarnes liggur um Nesgötu.
500 m
11 km
Krefjandi

Efstivegur

Lagt er af stað frá bílastæði í nágrenni við Lambhagatjarnir. Gamla þjóðleiðin þaðan og út á Öndverðarnes liggur um Nesgötu.
2,5 klst
500 m
4,5 km
Krefjandi

Hólavogur – Dritvík – Djúpalónssandur

Lagt er af stað frá bílastæði í nágrenni við Lambhagatjarnir. Gamla þjóðleiðin þaðan og út á Öndverðarnes liggur um Nesgötu.