Stóri Plokkdagurinn 2026 á Arnarstapa.

Sunnudaginn 26. apríl tökum við höndum saman og hreinsum friðlandið á Arnarstapa á stóra plokkdeginum 2026.

Hittumst kl. 11:00 við bílastæðið hjá Bárði Snæfellsás.

Starfsmenn þjóðgarðsins taka vel á móti ykkur og útvega poka og hanska. Við mælum með því að plokkarar komi með eigin plokktangir en ekki nauðsynlegt. Starfsmenn sjá um að fjarlægja allan úrgang sem safnast saman.

Eigum góða stund saman á Arnarstapa og plokkum í fallega umhverfið okkar. Hressing í boði fyrir alla plokkara eftir á.

Vonumst til að sjá sem flesta!

Deila frétt