Eyrbyggjusögurefill í Þjóðgarðsmiðstöðinni

Eyrbyggjusögurefill var afhentur kvenfélögunum á Hellissandi og í Ólafsvík í Þjóðgarðsmiðstöðinni nú á dögunum af Eyrbyggjusögufélaginu.

Kvenfélögin tvö munu sauma fimm hluta hans á næstu misserum í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi. Eyrbyggjusögufélagið fékk Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur til að hanna myndrefil byggðan á Sögu Þórsnesinga, Eyrbyggja og Álftfirðinga. Fyrstu sporin í reflinum voru tekin haustið 2025. Alls starfa sjö kvenfélög á Snæfellsnesi og fær hvert þeirra sinn hluta reflins til umsjónar.

Samstarfssamningar voru undirritaðir í gær, annars vegar mili Eyrbyggjusögufélagsins og kvenfélaganna tveggja og hins vegar milli Snæfellsjökulsþjóðgarðs og kvenfélaganna. Kvenfélögin munu hafa aðstöðu í þjóðgarðsmiðstöðinni næstu ár til þess að sauma í refilinn.

Það verður spennandi og fróðlegt að fylgjast með saumaskapnum á næstu misserum, en stefnt er að því að kvenfélögin hefjist handa eftir páska.

Deila frétt