Hvalreki í þjóðgarðinum

Margir heimamenn og ferðamenn hafa gert sér ferð að Írskrabrunni í þjóðgarðinum til að skoða hval sem rak þar á land nú á dögunum. Hvalurinn sem um ræðir er Búrhvals tarfur og er um 12m langur. Það er svo sannarlega spennandi að skoða svona stór og tignarlegt dýr líkt og búrhvalurinn er, það eru þó nokkrir hlutir sem gott er að hafa í huga við slíkt:

Mikil ólykt er af hvalnum , líkt og af öðrum hræum. Lyktin stafar af bakteríum sem vinna hratt í því að brjóta hræið niður. Við mælum með að fólk haldi sig í góðri fjarlægð frá hræinu og sé ekki að snerta það. Lyktin næst ekki auðveldlega úr fatnaði og bakteríurnar geta skapað sýkingarhættu. Fjaran er stórgrýtt og mikið um óstöðuga hnullunga.

Þjóðgarðurinn er í stöðugu sambandi við vísindasamfélagið, starfsmenn taka sýni og fylgjast með þróun mála. Sýni úr neðri kjálka hvalsins, augnlinsu og fitulagi hans hafa nú verið tekin úr hvalnum og afhent Hafrannsóknarstofnun Íslands. Munum við koma til með að deila niðurstöðum þegar þar að kemur.

Deila frétt