Það er okkur sönn ánægja að bjóða ykkur velkomin á opnun sýningar Annette Goessel listakonu, sem fram fer í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi föstudaginn 4. júlí kl. 15:30.
Sýningin Á augabragði // blink and you will miss it sýnir röð stórra olíumálverka á striga, í kringlóttum formum, sem og verk máluð með olíulitum beint á álflöt. Verkin eru innblásin af ferð listakonunnar Annette Goessel til Hellissands. Meginþema sýningarinnar eru sjónarhorn á hinn tignarlega Snæfellsjökul, sem fangaður í breytilegu ljósi og andrúmslofti í verkum Annette sem verða til sýnis.
Samhliða þessum landslagsverkum innblásin af síbreytilegum jöklinum er sería með titilinn Eftir ísinn // After the ice sem einblínir á nærmyndir af blómamyndum, einnig málaðar með olíu á álflöt í formi Alu – Dibond. Þessi sería af verkum kanna þemu umbreytingar, seiglu og brothættrar fegurðar sem fylgir í kjölfar bráðnunar íss.
Saman mynda málverkin sjónræna íhugun um tímans gang, hverfular minningar og viðkvæmt jafnvægi náttúrunnar á milli tignar og viðkvæmni.
Annette Goessel

Fyrsta ferð Annette til Íslands var fyrir sextán árum. Hún sneri aftur til Berlínar sem einlægur aðdáandi landsins. Hefur hún síðan þá ferðast hingað margoft, með hverri heimsókn hafa tengsl hennar við landið og fólkið dýpkað.
Mikilvægur áfangi á listrænni vegferð Annette var dvöl hennar sem gestalistamaður á Kolsstöðum með Helga Kr. Eiríkssyni. Þar, umlukin náttúrunni og á hljóðlátri vinnustofunni, skapaði hún verkið Iceland Glow, röð smárra pappírsverka, hvert 9 x 9 cm að stærð, eins og brot úr tilfinningalegu safni. Þau geyma birtuna, áferðina og svipmót íslenskrar náttúru.
Einn atburður sem hreif Annette djúpt var útför jökulsins Okjökuls. Þegar jökull missir massa sinn og getur ekki lengur talist jökull, missir hann nafn sitt. Okjökull verður einfaldlega Ok. Þessi atburður markaði þáttaskil í listsköpun Annette og leiddi til stórra hringlaga málverka. Fyrsta verkið í þeirri röð ber nafnið OK.
Persónuleg tenging Annette við Ísland má orða í einni setningu að hennar mati:
„Það eru tveir staðir sem þú þarft að heimsækja oft, annars vegar staðurinn sem læknar þig og hins vegar staðurinn sem veitir þér innblástur. Fyrir mig er Ísland bæði,“ segir listakonan Annette og lýsir þannig djúpri tengingu sinni við landið.
Vefsíða Annette : Annette Goessel, Malerin – Berlin, Island, Lübeck
ENGLISH
We are pleased to invite you to the opening of an exhibition by artist Annette Goessel, which will take place at the National Park Visitor Center in Hellissandur on Friday, July 4 at 3:30 PM.
The exhibition, blink and you will miss it, presents a series of large oil paintings on canvas in circular forms, as well as works painted directly in oil on aluminum surfaces. The works are inspired by the artist’s journey to Hellissandur. The central theme of the exhibition is perspectives on the majestic Snæfellsjökull glacier, captured in changing light and atmosphere through Annette’s expressive works.
Alongside these landscape paintings inspired by the ever-changing glacier is a series titled After the ice, which focuses on close-ups of floral forms, also painted in oil on aluminum using Alu-Dibond. This body of work explores themes of transformation, resilience, and the fragile beauty that emerges in the aftermath of melting ice.
Together, the paintings form a visual meditation on the passage of time, fleeting memories, and the delicate balance of nature—between grandeur and vulnerability.
Annette Goessel
Annette’s first journey to Iceland was sixteen years ago. She returned to Berlin as a devoted admirer of the country. Since then, she has traveled back many times, with each visit deepening her connection to the land and its people.
A significant milestone in Annette’s artistic journey was a residency at Kolsstaðir with Helgi Kr. Eiríksson. There, surrounded by nature and in the quiet solitude of the studio, she created Iceland Glow—a series of small paper works, each 9 x 9 cm in size, like fragments of an emotional archive. They capture the light, textures, and essence of the Icelandic landscape.
One moment that deeply moved Annette was the funeral for the Okjökull glacier. When a glacier loses its mass and can no longer be considered a glacier, it also loses its name. Okjökull becomes simply Ok. This event marked a turning point in Annette’s artistic practice and led to a series of large circular paintings. The first work in this series is titled OK.
Annette summarizes her personal connection to Iceland in one sentence:
“There are two places you need to go often—one that heals you, and one that inspires you. For me, Iceland is both,” says the artist, reflecting on her deep bond with the land.