Vegur að Djúpalónssandi LOKAÐUR 28. maí til 20. júní

Nánar

Náttúruverndarstofnun tekin til starfa

Þann 1. janúar 2025 tók Náttúruverndarstofnun til starfa.

Náttúruverndarstofnun tekur við verkefnum sem snúa að náttúruvernd, lífríkis- og veiðistjórnun hjá Umhverfisstofnun. Stofnunin fer með stjórnsýslu, eftirlit og önnur verkefni á sviði náttúruverndar og sjálfbærrar þróunar og á sviði friðlýstra svæða, vernd villtra fugla og spendýra og veiðistjórnunar. Þá sinnir stofnunin samhæfingu í skipulagi svæðisbundinnar stjórnunar og verndar og eftirliti á ofangreindum sviðum,

Það má búast við einhverri skerðingu á þjónustu fyrstu dagana á nýju ári.

Heimasíða stofnunarinnar er í vinnslu. Heimasíða Umhverfisstofnunar verður því aðgengileg fyrst um sinn sem og heimasíða Snæfellsjökulsþjóðgarðs sem mun halda sínu striki.

Deila frétt