Menningararfur Öndverðaness: Framtíðarsýn og tækifæri.

Opinn hádegisfundur í þjóðgarðsmiðstöðinni 

24. Mars kl 12:00 –13:00 

Hvernig gerum við menningararfinn sýnilegri og mótum sameiginlega framtíðarsýn um hvað skuli varðveita og hvernig svæðið þróast? 

Verið öll velkomin á opinn hádegisfund um minjaheildarsvæðið á Öndverðanesi. 

Á fundinum verður fjallað um framtíð Öndverðaness og rætt hvernig megi, með sameiginlegu átaki, efla sýnileika og gildi minja og sögu svæðisins. Á fundinum verða stutt fræðsluerindi þar sem minjaverðir segja frá vel heppnuðum verkefnum víða um land, þar sem menningararfur hefur verið gerður sýnilegur og aðgengilegur. 

Minjaverðir frá Minjastofnun Íslands sem flytja erindi: 

  • Magnús A. Sigurðsson, minjavörður Vesturlands 
  • Uggi Ævarsson, minjavörður Suðurlands 

Að loknum erindum verða spurningar og opnar umræður. Við vonumst til að skapa vettvang fyrir gott samtal um framtíð menningarminja á Öndverðanesi. 

Við hvetjum öll áhugasöm til að verja hádeginu með okkur, hlusta á áhugaverð erindi og taka þátt í umræðum um þennan merka menningararf. 

Deila frétt