Laust sumarstarf þjónustufulltrúa

Þjónustufulltrúi í Snæfellsjökulsþjóðgarð

Umsóknarfrestur

27.03.2024 til 12.04.2024

Inngangur

Við auglýsum eftir þjónustufulltrúa til sumarstarfa í sumar. Starfshlutfall getur verið frá 60-100% eftir samkomulagi. 

Umhverfisstofnun hefur umsjón með yfir hundrað náttúruverndarsvæðum. Eitt af okkar stærstu verkefnum í náttúruvernd er uppbygging innviða með bætt aðgengi, öryggi og verndun að leiðarljósi. Þjóðgarðurinn heyrir undir Umhverfisstofnun og mun þjónustufulltrúi vinna í teymi náttúruverndar þar sem áhersla er  á þverfaglega teymisvinnu. Hlutverk þjónustufulltrúa er að þjónusta gesti svæðanna, veita upplýsingar um svæðin, auk þess að hafa umsjón með gestastofu og söluvarningi.
Snæfellsjökulsþjóðgarður rekur tvær gestastofur. Annars vegar á Malarrifi og hins vegar í þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi, þar sem starfsaðstaða starfsmannsins verður. Megin verksvið þjónustufulltrúa er þjónusta við gesti þjóðgarðsins.
 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Móttaka gesta, fræðsla og upplýsingagjöf
  • Þjónusta og afgreiðsla í gestastofum
  • Halda utan um söluvarning
  • Halda sýningarrými snyrtilegu
  • Svara fyrirspurnum í tölvupósti
  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Þekking á þjóðgarðinum og/eða Hornströndum er kostur. 
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum og þjónustulund
  • Gott vald á íslensku og ensku. Frekari tungumálakunnátta er kostur
  • Reynsla af þjónustustörfum er kostur
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Áhugi á umhverfismálum er kostur
     

Tengiliðir

Hákon Ásgeirsson – hakon.asgeirsson@umhverfisstofnun.is – 5912000

Rut Ragnarsdóttir – rut.ragnarsdottir@umhverfisstofnun.is – 5912000

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags hafa gert.

Næsti yfirmaður í Snæfellsjökulsþjóðgarði er Hákon Ásgeirsson þjóðgarðsvörður. En auk þeirra veitir Þórdís Helgadóttir mannauðssérfræðingur einnig upplýsingar um störfin í síma 591-2000.


Umsækjendur eru beðnir að tiltaka í textasvæði í umsókn á hvorum staðnum þeir vilja helst starfa hafi þeir óskir um það.


Umhverfisstofnun er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður. Við búum yfir fjölbreyttri sérfræðiþekkingu, höfum tækifæri til að þróast í starfi og ástunda endurmenntun. 
Við störfum í teymum, vítt og breitt um landið á 9 starfsstöðvum og eftir vottuðum gæðakerfum. Við erum með jafnlaunavottun, með virka umhverfisstefnu og störfum samkvæmt Grænum skrefum, graenskref.is. 
Sjá nánari upplýsingar um Umhverfisstofnun á umhverfisstofnun.is


Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.


Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna. 


Umsóknarfrestur um starfið er til 12.apríl 2024. 
 

Starfshlutfall er 60 – 100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.04.2024

Sækja um

Deila frétt