Góð aðsókn um páskana

Fjöldi gesta lagði leið sína í Snæfellsjökulsþjóðgarð um páskana. Báðar gestastofur þjóðgarðsins voru opnar og tóku landverðir og þjónustufulltrúar vel á móti gestum alla páskana.

Yfir sex þúsund manns heimsóttu þjóðgarðinn yfir páskahelgina og nutu innan- og utandyra. Á páskadag var metaðsókn í þjóðgarðsmiðstöðina á Hellissandi þegar um fjögur hundruð manns heimsóttu gestastofuna.

Við þökkum góðum gestum fyrir komuna!

Deila frétt