Snæfellsjökulsþjóðgarður og Náttúruverndarstofnun bjóða þér að vera viðstödd þegar umhverfisráðherra opnar endurbættan Dritvíkurveg á afmælisdegi þjóðgarðsins 28 júní.
Dagsskrá:
Formleg opnun
Umhverfisráðherra opnar veginn með því að klippa á borðann.
Ávarp
Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Náttúruverndarstofnunnar segir nokkur orð.
Léttar veitingar verða í boði að lokinni athöfn
Landverðir bjóða upp á gönguferð með hátíðarívafi niður á Djúpalónssand að lokinni athöfn.
Velkomin í náttúruperluna Djúpalónssand og fögnum saman þessu ánægjulega tilefni.
Athugið einnig:
Kl. 13:00 er hin daglega fræðsluganga frá Malarrifi.
Þjóðgarðsmiðstöð og Gestastofa verða opin gestum allan daginn.
Sjá viðburð hér.