Sævar Helgi Bragason mætir í þjóðgarðsmiðstöðina þriðjudaginn 12. maí og heldur opinn fræðslufund um Almyrkva á sólu sem mun eiga sér stað þann 12. ágúst 2026. Erindið er í boði Soroptimistaklúbbs Snæfellsness.
Almyrkvinn verður sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan árið 1954. Almyrkvaslóðin liggur yfir Vestfirði, Snæfellsnes, Höfuðborgarsvæðið og Reykjanesskaga. Þetta verður fyrsti almyrkvinn sem sést frá Reykjavík síðan 17. júní 1433.
Hér í Snæfellsbæ mun almyrkvinn standa einna lengst og án efa setja sinn svip á bæjarbraginn dagana í kring, enda búist við miklum fjölda gesta á svæðið.
Fundurinn hefst kl 20:00 og eru öll hjartanlega velkomin!



