Þjónustugjöld í Snæfellsjökulsþjóðgarði.
Náttúruverndarstofnun er heimilt að taka þjónustugjald á friðlýstum svæðum eða náttúruverndarsvæðum í umsjón stofnunarinnar í samræmi við 2. mgr. 92. gr. laga nr. 60/2013, um náttúruvernd.
Þjónustugjald er innheimt á bílastæðum vegna kostnaðar sem fellur til á svæðinu svo sem vegna landvörslu, salerna, umhirðu sorps og viðhalds innviða.
Fyrir hvert ökutæki sem er lagt í gjaldskyldu bílastæði innan friðlýstra svæða eða á náttúruverndarsvæðum í umsjón stofnunarinnar, að undanskildu gjaldskyldu bílastæði í Landmannalaugum og Dyrhólaey, ber að greiða:
- Fólksbifreið, 5 farþega og færri, 1.110 kr.
- Fólksbifreið, 6-9 farþega, 1.440 kr.
- Rúta, 10-21 farþega, 2.770 kr.
- Rúta, 22-32 farþega, 5.200 kr.
- Rúta, 33 farþega og fleiri, 9.400 kr.
- Bifhjól, 450 kr.
Fyrir hvert ökutæki sem er lagt í gjaldskyldu bílastæði í Landmannalaugum ber að greiða:
- Fólksbifreið, 5 farþega og færri, 1.500 kr.
- Fólksbifreið, 6-9 farþega, 2.450 kr.
- Rúta, 10-21 farþega, 5.500 kr.
- Rúta, 22-32 farþega, 9.500 kr.
- Rúta, 33 farþega og fleiri, 16.500 kr.
- Bifhjól, 750 kr.
Fyrir hvert ökutæki sem er lagt í gjaldskyldu bílastæði í Dyrhólaey ber að greiða:
- Fólksbifreið, 5 farþega og færri, 750 kr.
- Fólksbifreið, 6-9 farþega, 1.000 kr.
- Rúta, 10-21 farþega, 2.000 kr.
- Rúta, 22-32 farþega, 4.000 kr.
- Rúta, 33 farþega og fleiri, 7.500 kr.
- Bifhjól, 300 kr.
Gjald á gjaldskyldum bílastæðum í umsjón Náttúruverndarstofnunar gildir mest í sólarhring (frá kl. 00.00 – 24.00) frá því að lagt er í gjaldskylt stæði.
Þar sem ekki er innheimt gjald á bílastæði er Náttúruverndarstofnun heimilt að taka sérstakt gjald fyrir aðgang að salernum á friðlýstum svæðum sem og á öðrum náttúruverndarsvæðum í umsjón stofnunarinnar. Gjaldið er 250 kr. á einstakling.
Snæfellsjökulsþjóðgarður rukkar fyrir þjónustugjöld í þjóðgarðinum á bílastæðinu við Malarrif og senn á Djúpalónssandi. Þjónustugjald er greitt á einum stað og gildir fyrir allan þjóðgarðinn í 24 tíma.
Frekari upplýsingar hér: Parka – Malarrif



