Ingunn Ýr nýr þjónustustjóri

Ingunn Ýr Angantýsdóttir hefur verið ráðin þjónustustjóri í Snæfellsjökulsþjóðgarði

Ingunn er með BA í þjóðfræði og stundar nám í menningastjórnun í Háskólanum á Bifröst.

Megin hlutverk þjónustustjóra er umsjón með rekstri þjóðgarðsmiðstöðvar á Hellissandi og gestastofu á Malarrifi, ábyrgð á þjónustu við gesti, viðburðastjórnun og gerð og miðlun fræðslu- og upplýsingaefnis.

Ingunn hefur undanfarna mánuði starfað sem þjónustufulltrúi í Snæfellsjökulsþjóðgarði, en starfaði áður við ýmiskonar verslunar og þjónustustörf og var flugfreyja hjá Icelandair um árabil. Ingunn hefur verið önnur af verkefnastýru og umsjónaraðili Snæfellsjökulshlaupsins frá árinu 2020. Ingunn hefur í störfum sínum m.a. sinnt viðburða- og verkefnastjórnun,  markaðssetningu, miðlun og gerð kynningarefnis.

Deila frétt