Mikil hálka á vegum og göngustígum// Roads and surfaces are slippery in the park!

Nánar

Jólagleði í þjóðgarðsmiðstöðinni

Við tókum fagnandi á móti desember og fengum líflegar heimsóknir frá krökkunum á elstu deild leikskóla Snæfellsbæjar ásamt nemendum í 1-4 bekk grunnskóla Snæfellsbæjar.

Hóparnir tveir komu færandi hendi með  jólaskraut á tréð í Þjóðgarðsmiðstöðinni sem þau föndruðu sjálf í þemanu fuglar. Verður þetta héðan í frá árlegur liður í jóladagskrá Snæfellsjökulsþjóðgarðs þar sem sérvalið þema úr lífríki þjóðgarðsins mun prýða jólatréð.

Krakkarnir fengu aðstoð frá jólasveini þjóðgarðsins við skreytingar og að lokum var dansað og sungið í kringum fallega jólatréð sem fengið var hjá Skóræktarfélagi Ólafsvíkur.

Þökkum við nemendum, kennurum, jólasveininum og Skóræktarfélaginu í Ólafsvík kærlega fyrir að færa jólaandann yfir Þjóðgarðsmiðstöðina með skrauti, söng, og gleði.

Í ár var þemað fuglar

Deila frétt