Fræðsludagskrá 2025

Frá 6. júní til 12. september bjóða landverðir upp á daglegar fræðslugöngur í Snæfellsjökulsþjóðgarði. Göngurnar eru að jafnaði auðveldar og henta öllum aldri.
Barnastundir verða haldnar í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi á fimmtudögum í júlí og ágúst. Þá bjóða landverðir uppá skemmtilega fræðslustund og leiki.
Auk þess verður boðið upp á vikulegar sérgöngur alla miðvikudaga í júlí og ágúst, þar sem áhersla er lögð á sérstök þemu eða svæði innan þjóðgarðsins.
Verið öll hjartanlega velkomin!
Barnastundir
Alla fimmtudaga í Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi í júlí og ágúst.
Klukkan: 11:00
Lengd: 40 mínútur
Skemmtileg fræðslustund og leikir fyrir alla krakka.

Daglegar göngur
Daglegar fræðslugöngur með landverði.
Búðir
Alla mánudaga hittir landvörður gesti á bílastæði við Búðarkirkju
Klukkan: 13:00
Lengd: 1 – 1,5 klukkustund
Gengið með landverði frá Búðarkirkju að Frambúðum.
Malarrif
Alla þriðjudaga, miðvikudaga, föstudaga, laugardaga og sunnudaga
Klukkan: 13:00
Lengd: 1 – 1,5 klukkustund
Gengið með landverði frá Gestastofu á Malarrifi að Svalþúfu.

Vikulegir viðburðir
6. júní.
Alþjóðadagur hafs – Hafið og við – Fjölskylduvæn fræðsluganga í Krossavík
Klukkan 10:30.
Hressandi fræðsluganga með landverði sem hentar fyrir alla fjölskylduna.
Hittumst í þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellisandi
25 júní. Fuglaskoðun á Svalþúfu
Klukkan: 10:30
Hittu landvörð á Svalþúfu og nýttu tækifærið til þess að fræðast um lífshætti og atferli fuglanna þar sem og bera kennsl á þá fugla.
20. júní. Dagur hinna villtu blóma – Blómaganga um Rauðhól
Klukkan 10:30
Í tilefni Dags hinna villtu blóma býður Snæfellsjökulsþjóðgarður upp á fróðlega gönguferð með landverði um Rauðhól. Skoðaðar verða fjölbreyttar plöntur og villt blóm í sínu náttúrulega umhverfi. Gangan er létt og viðeigandi fyrir flesta. Gott er að hafa með sér vatn og vera í þægilegum gönguskóm.
Hittumst á bílastæðinu við Rauðhól.
Lengd: gangan tekur um 1,5 tíma.
2. júlí. Sagan við ströndina – Gönguferð um Djúpalón og Dritvík
Klukkan 10:30
Gönguferð með landverði um söguslóðir við Djúpalónssand og Dritvík. Við hefjum gönguna niður Nautastíg, förum fram hjá aflraunasteinunum og göngum yfir sandinn að Sessum. Þaðan liggur merkt leið yfir í hina sögufrægu Dritvík, þar sem áður bjuggu hundruð manna yfir vertíðina. Við göngum sömu leið til baka – með útsýni, sögu og náttúru í forgrunni.
Hittumst á neðra bílastæðinu við Djúpalón
Lengd: Gangan tekur um 1 klukkustund með fræðslu.
9. júlí. Frá fuglabjargi til hrauns – Ganga milli Arnarstapa og Hellna
Klukkan: 10:30
Upplifðu einstakt landslag á göngu um Neðstagötu, sem liggur um Hellnahraun meðfram strandlengjunni milli Arnarstapa og Hellna. Á leiðinni má sjá áhrif náttúruaflanna á hraunið – sorfna kletta, gjár og stórbrotið útsýni. Við Arnarstapa gefst jafnframt fágæt tækifæri til að skoða ritur á hreiðrum sínum í klettagjám. Svæðið er friðland vegna sérkennilegra klettamyndana við sjóinn.
Hittumst á bílastæði við höfnina á Arnarstapa.
Lengd: gangan tekur um 1,5 klukkustund.
16. júlí. Mannlíf og minjar – Gufuskálar með landverði
Klukkan: 10:30
Komdu með í skemmtilega og sögulega gönguferð um Írskrabrunn, Gufuskálavör og fiskbyrgin í hraunjaðrinum.
Gangan hefst við bílastæðið við Írskrabrunn
Lengd: gangan tekur um 2 klukkustundir.
23 júlí. Fjallið og fjarlægðin – Ganga á Hreggnasa
Klukkan 10:30
Lagt er af stað við göngubrúna yfir Móðulæk í mynni Eysteinsdals og haldið upp á Hreggnasa, sem rís 469 metra yfir sjávarmál. Leiðin er að mestu aflíðandi og þægileg, en verður brattari þegar nær dregur toppnum. Útsýnið af fjallinu er stórbrotið í allar áttir, en snarbrattir klettar blasa við þegar komið er á tindinn – varúð er því nauðsynleg.
Hittumst við gatnamót Útnesvegar og Eysteinsdalsvegar og gengið að göngubrúnni yfir Móðulæk í mynni Eysteinsdals.
Lengd: gangan tekur um 2 klukkustundir.
7 ágúst. Lífríki og leifar – Gönguferð um Eyrar og Lambhagatjarnir
Klukkan: 10:30
Ganga um Eyrar og Lambhagatjarnir með Landverði. Skoðað verður fjölbreytt lífríki og mannvistarleifar.
Lengd: Gangan tekur um 1,5-2 tíma
Hittumst á bílastæðinu við Eyrar
13. ágúst. Öndverðaneshringurinn – lengri ganga með landverði
Klukkan: 10:30
Gengið verður með landverði um Neshraun og fræðst um jarðfræði svæðisins. Gangan er í lengra lagi svo það er gott að hafa með sé nesti og vatn.
Hittumst við Vatnsborgarbílastæði.
Lengd: Gangan tekur 3 klst.
