Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi
Opnunartími: Alla daga kl. 10:00 – 16:00 Sími: 661-1500

Þjóðgarðsmiðstöð
Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi var opnuð 24.mars 2023.
Skiltasýning um Snæfellsjökulsþjóðgarð prýðir sýningasal en þar er áætlað að varanleg sýning verði sett upp 2024. Þá er fræðslu- og kennslurými ásamt möguleika til fyrirlestrahalda.
Þjónustufulltrúar og landverðir veita almennar upplýsingar og fræðslu um svæðið. Þá er einnig minjagripasala þar sem áhersla er lögð á vörur tengdar þjóðgarðinum.
Elja Kaffihús sér um rekstur veitingasölu innan Þjóðgarðsmiðstöðvar. Þar eru sæti fyrir 40 manns og opnunartími frá kl. 10:00-16:00.

Jökulhöfði
Hönnun hússins heitir Jökulhöfði og kemur frá Arkís arkitektum sem unnu hönnunarsamkeppni árið 2006. Húsið skiptist í þrennt; til suðurs er Jökulhöfði, en það nafn vísar í Snæfellsjökul sem trónir yfir húsinu og hýsir sýningarsal og veitingar, til norðurs er Fiskbeinið sem vísar til fengsælla fiskmiða á svæðinu og hýsir skrifstofur Snæfellsjökulsþjóðgarðs, minjagripaverslun, upplýsingaborð og fræðslurými.

Í efra rými Jökulhöfða er að finna grunnsýninguna Undur Snæfellsjökuls. Áherslur í sýningunni eru jarðfræði og dulúð Snæfellsjökuls, þjóðsögur og staðreyndir sem og sögur um hin fjölbreyttu svæði þjóðgarðsins.
Á sýningunni má skoða veglegt steinasafn Haraldar Sigurðssonar eldfjallafræðings úr Stykkishólmi sem Náttúruminjasafn Íslands lánar þjóðgarðinum. En það geymir sýni úr helstu bergtegundum á svæðinu og á Íslandi.
Í miðju rýminu er líkan af Snæfellsjökli og landslaginu í kring þar sem má sjá hraun flæða, jökulinn hopa, norðurljós dansa, báta róa og tröll birtast svo fátt eitt sé nefnt. Líkanið tengist svo staðsetningum í kringum jökulinn þar sem hægt er að nálgast þjóðsögur og fróðleik.
Engin aðgangseyrir er að sýningunni og öll hvött að til að skoða sýninguna og fræðast um dulmögnun Snæfellsjökuls og þjóðgarðinn sjálfan.

BREEAM vottun
Þjóðgarðsmiðstöðin er fullhönnuð og byggð út frá alþjóðlegum vottunarstaðlinum BREEAM en þau viðmið ganga út frá að notuð sé umhverfisvæn byggingarefni og að úrgangur sé takmarkaður á byggingartíma og í rekstri sem stuðlar að því að byggingarnar verði fyrir vikið umhverfisvænni og hagkvæmari í rekstri.

Þeir þættir BREEAM sem eiga einna helst við í Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi;
Daglegur rekstur er miðaður út frá Grænu bókhaldi og í lok hvers rekstrarárs verður sýnt fram á útreikninga á dagsbirtu, orku- og vatnsnotkun.
Þá verður allur úrgangur sem fer frá byggingunni vigtaður. Slíkar kröfur voru jafnframt gerðar á verktaka í gegnum allt byggingarferlið.
Aðgengi að húsinu er til fyrirmyndar en hér eru góðir göngu- og hjólastígar sem liggja til og frá Þjóðgarðsmiðstöðinni.
Hleðslustöðvar munu standa til boða bæði fyrir gesti og starfsfólk þjóðgarðsins.
Allt ferlið í byggingu og rekstri er unnið út frá umhverfisvænustu háttum og efnisval viðhaldslítið (efni fær að veðrast, engin málning utandyra og fl.)
Allt timbur sem notað er í byggingunni er FSC vottað sem þýðir að það er rekjanlegt í öllu framleiðsluferlinu.

Þjóðgarðsmiðstöðin á Hellissandi er hönnuð í samræmi við samkeppnistillögu Arkís arkitekta ehf. Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) stjórnuðu byggingaframkvæmd og Húsheild verktakar sáu um verklega framkæmd.
Heildarstærð 710fm
Rými til samfélagslegra nota 600fm
Heildarkostnaður framkvæmda 640 milljónir
Framkvæmdir hófust árið 2020 og lauk árið 2022.
Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi var formlega opnuð 24.mars 2023.
