← Fréttir

Opinn kynningar- og umræðufundur um árspassa í þjóðgarðinn

Birt 12.05.2026 · Hákon Ásgeirsson

Má bjóða þér að taka þátt í að móta árspassa í Snæfellsjökulsþjóðgarð?

Í framhaldi af málþinginu um gjaldskyldu á ferðamannastöðum sem haldið var í febrúar er boðað til opnar kynningar- og umræðufundaraðar um Snæfellsnes. Fundaröðin er í tengslum við RETURN verkefnið https://www.returnproject.org/ sem Rannsóknarmiðstöð ferðamála heldur utan um.

Hér gefst tækifæri til að hafa áhrif á þróun nýs árspassa í Snæfellsjökulsþjóðgarð, eiga samtal um gjaldskylduna yfir léttum veitingum.

Fundarstaðir eru eftirfarandi:

19. maí kl. 13:00 - Breiðablik í Eyja- og Miklaholtshreppi

19. maí kl. 16:00 - Nesbrauð í Stykkishólmi

20. maí kl. 12:00 - Sögumiðstöðin í Grundafirði

20. maí kl. 15:00 - Þjóðgarðsmiðstöðin í Snæfellsbæ

Dagskrá:

•Hlédís Sveinsdóttir framkvæmdastjóri Svæðisgarðs Snæfellsnes opnar.

•Ragnhildur Sigurðardóttir þjóðgarðsvörður Snæfellsjökulsþjóðgarðs kynnir tillögur að árspassa í þjóðgarðinn.

•Guðrún Þóra Gunnarsdóttir og Johannes Welling frá Rannsóknarmiðstöð ferðamála (RMF), segja frá Return-verkefninu sem fjallar um ferðamannaskatta og gjöld.

•Umræður.

Öll velkomin!

Uncategorized @is
Leit

Sláðu inn leitarorð.