Beruvík – Öndverðarnes – um Neshraun
Lagt er af stað frá bílastæði í nágrenni við Lamhagatjarnir. Gamla þjóðleiðin þaðan og út á Öndverðarnes liggur um Nesgötu. Leiðin er vörðuð. Á syðri hluta leiðarinnar, frá Moldflögum að Grashólshelli, má sjá hvernig gatan hefur verið rudd og hlaðin á köflum. Leiðin frá Moldflögum að Öndverðarnesvegi er rúmir 6km en sé gengið alla leið út á Öndverðarnestá bætast tæpir 2 km við. Gígjarnir og hraungróðurinn eru mjög viðvæmir fyrir raski. Því er sérstaklega mikilvægt að ganga aðeins eftir merktum leiðum.
Áningastaðir
Öndverðarnes
Öndverðarnes er vestasti tangi Snæfellsness. Á árum áður var þar mikil útgerð, m...
Beruvík
Í Beruvík eru fallegar tjarnir og rústir frá þeim tíma þegar þar var búið, svo s...
Skarðsvík
Skarðsvík er einstaklega falleg vík með gulum skeljasandi og sægrænum sjó. Víkin...