← Viðburðir

Vinnustofa: Loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á nærumhverfi, menningarlandslag og framtíð Snæfellsness.

Hefst:
18.08.2026 13:00
Lýkur:
18.08.2026 15:30
Staðsetning:
Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi

Hagnýt og þátttökumiðuð vinnustofa þar sem skoðað verður hvernig loftslagsbreytingar hafa áhrif á menningarlandslag, framtíð og nærumhverfi á Snæfellsnesi, með stuttri kynningu og fjölbreyttum verkefnum í hópum.

Hvað verður um staðbundnar hefðir, þekkingu og landslag þegar loftslagið breytist? Og hvað gætu þessar breytingar þýtt fyrir framtíð Snæfellsness?

Vinnustofan hefst á stuttri kynningu og í kjölfarið fara fram hópverkefni þar sem þátttakendur greina dæmi og ræða þær áskoranir og tækifæri sem blasa við í breyttu loftslagi.

Í lokin verður skapandi verkefni þar sem horft er 30 ár fram í tímann: Hvað vonumst við til að komandi kynslóðir geti enn upplifað, stundað og metið að verðleikum?

Vinnustofan gefur þátttakendum tækifæri til að kynnast, deila staðbundinni þekkingu og reynslu og velta fyrir sér mögulegum framtíðum saman. Verkefnin eru hugsuð til að hvetja til samtals, ígrundunar og skoðanaskipta. Engrar fyrri þekkingar er krafist – öll eru velkomin að taka þátt.

Vinnustofan er skipulögð af Samantha Tobiás, doktorsnema við University College Dublin á Írlandi, í samstarfi við Snæfellsjökulsþjóðgarð. Samantha dvaldi á Snæfellsnesi síðastliðinn vetur þar sem hún tók viðtöl við fólk úr nærsamfélaginu, meðal annars bændur, sjómenn, fornleifafræðinga og fjölmarga aðra sem hluta af rannsókn sinni.

Komdu og taktu þátt – deildu þekkingu þinni og reynslu og hjálpaðu okkur að ímynda okkur framtíð Snæfellsness.

Leit

Sláðu inn leitarorð.