Vegurinn út á Öndverðanes lokaður frá 30/6 - 5/7
← Viðburðir

Sagan við ströndina - Gönguferð um Djúpalón og Dritvík

Hefst:
02.07.2026 14:00
Lýkur:
02.07.2026 16:00

Gönguferð með landverði um söguslóðir við Djúpalónssand og Dritvík. Við hefjum gönguna niður Nautastíg, förum fram hjá aflraunasteinunum og göngum yfir sandinn að Sessum. Þaðan liggur merkt leið yfir í hina sögufrægu Dritvík, þar sem áður bjuggu hundruð manna yfir vertíðina.

Við göngum sömu leið til baka – með útsýni, sögu og náttúru í forgrunni.

Hittumst á neðra bílastæðinu við Djúpalón

Lengd: Gangan tekur um 1,5 -2 klukkustund.

Leit

Sláðu inn leitarorð.