← Viðburðir

Jökullinn Kallar - Ganga að Snæfellsjökli með landverði og jöklafræðingi

Hefst:
09.07.2026 14:00
Lýkur:
09.07.2026 17:00

Komdu með í skemmtilega göngu að jökulrönd Snæfellsjökuls með landverði. Við munum fylgja gömlum vegslóða upp að jöklinum og njótum útsýnis og fræðslu á leiðinni.

Jöklafræðingurinn Tómas Jóhannesson frá Jöklarannsóknarfélagi Íslands (Jorfi.is Jöklarannsóknafélag Íslands.) mun einnig leiða gönguna með landverði. Verður þetta því einstakt tækifæri til þess að fræðast enn meira um Snæfellsjökul.

Upphafsstaður: Í Eysteinsdal, rétt innan við gatnamótin að jökli. Hnit: 64°50'20.8"N 23°48'05.8"W. Sjá nánar á maps : 64°50'20.8"N 23°48'05.8"W - Google Maps.

Gönguleiðin liggur að mestu eftir gömlum vegslóða. Síðustu um 200–300 metrana að jökulröndinni er farið yfir laust grjót og jökulruðning, þannig að mikilvægt er að fara varlega og vera í góðum gönguskóm.

Gott er að taka með sér: Vatn, létt snarl og vera vel skóuð.
uskó

Gangan tekur um 1 klst. og 40 mín. upp og niður á þægilegum gönguhraða. Með stoppum og fræðslu má reikna með að ferðin taki um 2,5–3 klukkustundir.

Leit

Sláðu inn leitarorð.