Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull verður fimm ára miðvikudaginn 28. júní. Haldið verður upp á afmælið í Grunnskólanum á Hellissandi og hefst hátíðin kl. 14.
Umhverfisráðherrann Jónína Bjartmarz flytur ávarp og saga þjóðgarðsins verður rakin í máli og myndum. Hápunktur afmælisins er verðlaunaafhending í samkeppni um hönnun á þjóðgarðsmiðstöð sem rísa mun á Hellissandi. Alls bárust 17 tillögur í keppnina og verða þær til sýnis í skólanum fram á laugardag 1. júlí frá kl. 10-16.
Allir eru velkomnir í afmælisveisluna sem lýkur með afmæliskaffi og gönguferð að svæðinu þar sem þjóðgarðsmiðstöðin verður reist.
Afmælishátíð og verðlaunaafhending
28. júní 2006 kl. 14 í grunnskólanum á Hellissandi
Dagskrá:
- Þjóðgarðsvörður býður gesti velkomna.
- Söngur.
- Saga þjóðgarðsins: Árni Bragason forstöðumaður náttúruverndarsviðs Umhverfisstofnunar og Guðbjörg Gunnarsdóttir þjóðgarðsvörður fara í máli og myndum í gegnum söguna.
- Tónlistaratriði.
- Umhverfisráðherra Jónína Bjartmarz ávarpar afmælisgesti.
- Kristinn Jónasson bæjarstjóri Snæfellsbæjar flytur ávarp.
- Tónlistaratriði.
- Hver bjó síðast á bænum þar sem þjóðgarðsmiðstöðin mun rísa? Sæmundur Kristjánsson sagnamaður og landvörður segir frá.
- Stefán Benediktsson formaður dómnefndar í hönnunarsamkeppni um þjóðgarðsmiðstöð segir frá vinnu nefndarinnar og tillögum sem bárust.
- Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra og Davíð Egilson forstjóri Umhverfisstofnunar afhenda verðlaun í samkeppninni.
- Afmæliskaffi.
- Stutt gönguferð upp á svæðið þar sem þjóðgarðsmiðstöðin mun rísa.