← News

Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull 5 ára

Published 27.06.2006 · Rut

Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull verður fimm ára miðvikudaginn 28. júní. Haldið verður upp á afmælið í Grunnskólanum á Hellissandi og hefst hátíðin kl. 14.

Umhverfisráðherrann Jónína Bjartmarz flytur ávarp og saga þjóðgarðsins verður rakin í máli og myndum. Hápunktur afmælisins er verðlaunaafhending í samkeppni um hönnun á þjóðgarðsmiðstöð sem rísa mun á Hellissandi. Alls bárust 17 tillögur í keppnina og verða þær til sýnis í skólanum fram á laugardag 1. júlí frá kl. 10-16.

Allir eru velkomnir í afmælisveisluna sem lýkur með afmæliskaffi og gönguferð að svæðinu þar sem þjóðgarðsmiðstöðin verður reist.

Afmælishátíð og verðlaunaafhending

28. júní 2006 kl. 14 í grunnskólanum á Hellissandi

Dagskrá:

Þjóðgarðsvörður býður gesti velkomna.

Söngur.

Saga þjóðgarðsins: Árni Bragason forstöðumaður náttúruverndarsviðs Umhverfisstofnunar og Guðbjörg Gunnarsdóttir þjóðgarðsvörður fara í máli og myndum í gegnum söguna.

Tónlistaratriði.

Umhverfisráðherra Jónína Bjartmarz ávarpar afmælisgesti.

Kristinn Jónasson bæjarstjóri Snæfellsbæjar flytur ávarp.

Tónlistaratriði.

Hver bjó síðast á bænum þar sem þjóðgarðsmiðstöðin mun rísa? Sæmundur Kristjánsson sagnamaður og landvörður segir frá.

Stefán Benediktsson formaður dómnefndar í hönnunarsamkeppni um þjóðgarðsmiðstöð segir frá vinnu nefndarinnar og tillögum sem bárust.

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra og Davíð Egilson forstjóri Umhverfisstofnunar afhenda verðlaun í samkeppninni.

Afmæliskaffi.

Stutt gönguferð upp á svæðið þar sem þjóðgarðsmiðstöðin mun rísa.

Með kveðju, Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull

Uncategorized
Search

Enter a search term.