Sólmyrkvi 2026 - Upplýsingar fyrir gesti
Miðvikudaginn 12. ágúst 2026 er sem kunnugt er sólmyrkvi sem sést vel frá Snæfellsjökulþjóðgarði. Starfsfólk þjóðgarðsins mun leggja sig fram um að miðla upplýsingum í tengslum við umgengni á svæðinu fyrir, þennan dag og eftir sólmyrkvann enda margt um að vera og búist við fjölmörgum gestum. Öryggismál eru unnin í nánu samstarfi við lögreglu og aðra viðbragðsaðila á svæðinu.
Engin tjaldsvæði eru innan þjóðgarðsins og ekki er heimilt að gista á bílastæðum. Veitingaþjónusta er öll utan þjóðgarðsins. Í Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi er rekið kaffihús allan ársins hring en í sólmyrkvavikunni verða fjölmargir veitingavagnar staðsettir í næsta nágrenni þjóðgarðsins auk þess sem veitingastaðir á Snæfellsnesi eru opnir.
Umferðastýring á vegi [574] Útnesvegi þar sem einstefna verður frá Búðum að [579] Öndverðarnesvegi - 12. ágúst frá kl. 9 árdegis.
Flestallir malarvegir frá [574] Útnesvegi verða lokaðir.
Vegur [579] út í Öndverðarnes verður lokaður fyrir fólksbílum en rútur ganga á hálftíma fresti frá vegi út á Öndverðarnes frá kl. 11 - Ókeypis aðgangur í rútur.
Gjaldskylda verður á öllum bílastæðum.
Bílastæði:
Bílastæði P6 Djúpalón er fullt!
Bílastæði P7 Djúpalón er fullt!
Bílastæði P2 Svalþúfa er fullt!
Bílastæði P14 Hellissandur er fullt!
Bílastæði P10 Saxhóll er fullt!
Bílastæði P8 Djúpalón er fullt!
Salerni innan þjóðgarðsins verða á eftirfarandi stöðum:
Svalþúfa
Malarrif
Djúpalónssandur
Eysteinsdalur fyrir neðan veg.
Öndverðarnes
Hellissandur
LOKAÐ Í ÞJÓÐGARÐSMIÐSTÖÐ OG GESTASTOFU Á MALARRIFI FRÁ KL. 17:30 - 18:30!
Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi er opin 10. - 14. ágúst kl. 9:00 – 22:00
Gestastofa á Malarrifi opin 10:30 - 16:30 alla daga nema 12. ágúst til kl. 19:00