Þjónustufulltrúi í Snæfellsjökulsþjóðgarð
Umsóknarfrestur
27.03.2024 til 12.04.2024
Inngangur
Við auglýsum eftir þjónustufulltrúa til sumarstarfa í sumar. Starfshlutfall getur verið frá 60-100% eftir samkomulagi.
Umhverfisstofnun hefur umsjón með yfir hundrað náttúruverndarsvæðum. Eitt af okkar stærstu verkefnum í náttúruvernd er uppbygging innviða með bætt aðgengi, öryggi og verndun að leiðarljósi. Þjóðgarðurinn heyrir undir Umhverfisstofnun og mun þjónustufulltrúi vinna í teymi náttúruverndar þar sem áhersla er á þverfaglega teymisvinnu. Hlutverk þjónustufulltrúa er að þjónusta gesti svæðanna, veita upplýsingar um svæðin, auk þess að hafa umsjón með gestastofu og söluvarningi.
Snæfellsjökulsþjóðgarður rekur tvær gestastofur. Annars vegar á Malarrifi og hins vegar í þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi, þar sem starfsaðstaða starfsmannsins verður. Megin verksvið þjónustufulltrúa er þjónusta við gesti þjóðgarðsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka gesta, fræðsla og upplýsingagjöf
- Þjónusta og afgreiðsla í gestastofum
- Halda utan um söluvarning
- Halda sýningarrými snyrtilegu
- Svara fyrirspurnum í tölvupósti
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
- Þekking á þjóðgarðinum og/eða Hornströndum er kostur.
- Framúrskarandi hæfni í samskiptum og þjónustulund
- Gott vald á íslensku og ensku. Frekari tungumálakunnátta er kostur
- Reynsla af þjónustustörfum er kostur
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Áhugi á umhverfismálum er kostur
Tengiliðir
Hákon Ásgeirsson – hakon.asgeirsson@umhverfisstofnun.is – 5912000
Rut Ragnarsdóttir – rut.ragnarsdottir@umhverfisstofnun.is – 5912000
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags hafa gert.
Næsti yfirmaður í Snæfellsjökulsþjóðgarði er Hákon Ásgeirsson þjóðgarðsvörður. En auk þeirra veitir Þórdís Helgadóttir mannauðssérfræðingur einnig upplýsingar um störfin í síma 591-2000.
Umsækjendur eru beðnir að tiltaka í textasvæði í umsókn á hvorum staðnum þeir vilja helst starfa hafi þeir óskir um það.
Umhverfisstofnun er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður. Við búum yfir fjölbreyttri sérfræðiþekkingu, höfum tækifæri til að þróast í starfi og ástunda endurmenntun.
Við störfum í teymum, vítt og breitt um landið á 9 starfsstöðvum og eftir vottuðum gæðakerfum. Við erum með jafnlaunavottun, með virka umhverfisstefnu og störfum samkvæmt Grænum skrefum, graenskref.is.
Sjá nánari upplýsingar um Umhverfisstofnun á umhverfisstofnun.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsóknarfrestur um starfið er til 12.apríl 2024.
Starfshlutfall er 60 – 100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.04.2024