Þjónustugjöld í Snæfellsjökulsþjóðgarði
Í Snæfellsjökulsþjóðgarði er innheimt eitt þjónustugjald vegna kostnaðar sem fellur til á svæðinu svosem vegna landvörslu, salerna, umhirðu sorps og viðhalds innviða þjóðgarðsins. Gestir greiða þjónustugjald þegar greitt er fyrir bílastæði innan þjóðgarðsins. Þjónustugjald gildir til miðnættis fyrir allan þjóðgarðinn.
Gjaldskrá:
Bifhjól, 450 kr.
Fólksbifreið, 5 farþega og færri, 1.110 kr.
Fólksbifreið, 6-9 farþega, 1.440 kr.
Rúta, 10-21 farþega, 2.770 kr.
Rúta, 22-32 farþega, 5.200 kr.
Rúta, 33 farþega og fleiri, 9.400 kr.
Greitt er með Parka-Appi eða með QR kóða (sem er hér fyrir neðan) en einnig er greiðsluvél á Malarrifi. Greiðsluvél er væntanleg á Djúpalónssandi.
Náttúruverndarstofnun er heimilt að taka þjónustugjald á friðlýstum svæðum eða náttúruverndarsvæðum í umsjón stofnunarinnar í samræmi við 2. mgr. 92. gr. laga nr. 60/2013, um náttúruvernd.