← Fréttir

Lífríki fjörunnar í augum ungra listamanna

Birt 09.10.2026 · Guðrún Stefanía

Fimmtudaginn 8. október var opnuð sýning nemenda 4. bekkjar úr Grunnskóla Snæfellsbæjar í þjóðgarðsmiðstöðinni sem ber heitið „Hvað býr í fjörunni?“ og er hluti af Barnamenningarhátíð Vesturlands. Unnið var með lífríki fjörunnar.

Nemendur byrjuðu á að skoða lífríkið í Krossavík og fengu fræðslu frá landverði Snæfellsjökulsþjóðgarðsins um hvernig hægt væri að greina og þekkja kuðunga og skeljar.

Nemendum var skipt í hópa, þrjú í hverjum hóp og vinnan hófst á því að þau gerðu hugarkort um hvað heillaði þau mest við fjöruna. Síðan var gerð vinnuteikning þar sem nemendur útfærðu hugmyndirnar sínar. Áfram var unnið á léreft með aðferðum textíls og myndlistar og nýttu listamennirnir sér efnisbúta, textílliti og garn til að teikna og sauma út undir leiðsögn Ragnheiðar Guðmundsdóttur textílkennara og Ingu Harðardóttur myndmenntakennara.

Starfsmenn Snæfellsjökulsþjóðgarðs eru mjög glöð með þessa litríku og fallegu sýningu og hvetja gesti þjóðgarðsmiðstöðvarinnar á Hellissandi, sem er opin alla daga, til að skoða.

Leit

Sláðu inn leitarorð.