Framkvæmdir við Saxhól og Öndverðanesveg
Birt 30.06.2026 · Ingunn Ýr Angantýsdóttir
Yfirstandandi framkvæmdir í þjóðgarðinum
Nú standa yfir framkvæmdir við Saxhól og á Öndverðanesvegi.
Saxhóll
Verið er að klára neðra svæði við Saxhól, næstu daga verður vinnusvæðið lokað. Öllum er heimilt að fara uppá Saxhól en mikilvægt er að taka tillit til framkvæmda.
Öndverðanesvegur
Vegagerðin hefur nú hafið lagfæringar á veginum sem standa yfir til 8. júlí. Vegurinn er því lokaður frá 08:00-19:00 frá og með deginum í gær. Hægt er að keyra hann eftir 19:00 og til 08:00 að Skarðsvík.
Við þökkum tillitsemina og biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda