Að loknum sólmyrkva
Í tengslum við sólmyrkvann á Snæfellsnesi árið 2026 var lögð mikil vinna í að undirbúa Snæfellsjökulsþjóðgarð sem allra best fyrir daginn, enda var búist við miklum fjölda gesta á Snæfellsnesi.
Ótal vinnustundir liggja að baki undirbúningnum, bæði hjá starfsfólki Snæfellsjökulsþjóðgarðs og Náttúruverndarstofnunar, auk fjölmargra annarra samstarfsaðila. Allt gekk vonum framar og vill Snæfellsjökulsþjóðgarður koma á framfæri innilegu þakklæti til:
Snæfellsbæjar, Íslenska gámafélagsins, Kubbs, björgunarsveitanna, lögreglunnar og Vegagerðarinnar.
Geimvísindastofnunar Íslands og þeirra fjölmörgu vísindamanna sem voru hér við störf.
Allra landvarða og sjálfboðaliða sem störfuðu í þjóðgarðinum og lögðu sitt af mörkum til að gestirnir fjölmörgu gætu notið náttúrunnar á öruggan og ánægjulegan hátt.
Gestum okkar færum við einnig kærar þakkir fyrir komuna í Snæfellsjökulsþjóðgarð og fyrir góða umgengni við hina dýrmætu náttúru þjóðgarðsins.
Að lokum færum við öllum þeim sem ekki eru sérstaklega nefndir hér, en eru fjölmargir, okkar innilegustu þakkir fyrir þeirra framlag og samstarf.
Takk fyrir frábært samstarf og ómetanlegt framlag!