Dagskrá þjóðgarðsins Snæfellsjökuls er nú að fara í fullan gang og verður boðið upp á tvo viðburði um næstu helgi. Á laugardag 7. júní verður 4. áfangi göngunnar með endilangri strönd þjóðgarðsins sem hófst síðasta sumar farinn. Gengið verður frá Þórðarkletti að Skálasnagavita og verða Tómas Gunnarsson fuglafræðingur og Sæmundur Kristjánsson leiðsögumenn um fuglalíf, sögu og náttúru svæðisins. Gangan tekur um 4-5 klst. og er fólki bent á að vera í góðum skóm og taka með sér nesti. Mæting er við afleggjarann út á Öndverðarnes kl. 10:45. Sunnudaginn júní kl. 11 verður refaskoðunarferð við Malarrif undir Leiðsögn Sæmundar Kristjánssonar. Jafnvel er búist við að “kunnuglegir” refir láti sjá sig þar.
Fleiri fréttir
Sumaropnun tekur gildi
Nú með hækkandi sól tekur í gildi sumaropnun á gestastofum Snæfellsjökulsþjóðgarðs. Gestastofan á Malarrifi er opin frá kl. 10:00-16:30 alla daga. Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi er opin frá kl. 10:00-17:00 alla daga.
Dagur Jarðar 2024
Degi jarðar er ætlað að minna okkur á að fara vel með jörðina og umhverfið. Deginum er einnig ætlað að vekja athygli heimsins á loftslagsbreytingum og hlýnun jarðar og hvetja alla til að vinna að verndun umhverfisins. Nú þegar snjórinn hefur að mestu kvatt okkur á Snæfellsnesi er kjörið að njóta nærandi útivistar og sjá…
Laust sumarstarf þjónustufulltrúa
Þjónustufulltrúi í Snæfellsjökulsþjóðgarð Umsóknarfrestur 27.03.2024 til 12.04.2024 Inngangur Við auglýsum eftir þjónustufulltrúa til sumarstarfa í sumar. Starfshlutfall getur verið frá 60-100% eftir samkomulagi. Umhverfisstofnun hefur umsjón með yfir hundrað náttúruverndarsvæðum. Eitt af okkar stærstu verkefnum í náttúruvernd er uppbygging innviða með bætt aðgengi, öryggi og verndun að leiðarljósi. Þjóðgarðurinn heyrir undir Umhverfisstofnun og mun þjónustufulltrúi…