← Viðburðir

Sýningaropnun: Melrakki. Ljósmyndasýning & fræðsluerindi.

Hefst:
29.05.2026 12:00
Lýkur:
29.05.2026 13:00

Þann 29. maí mun ljósmyndasýningin Melrakki, eftir Phil Garcia, opna í þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi. Í tilefni af sýningaropnuninni verður Ester Rut Unnsteinnsdóttir spendýravistfræðingur með áhugavert erindi um íslenska refinn.

Sýningin Melrakki samanstendur af átta stórum ljósmyndum af íslenska refnum í sínu náttúrulega umhverfi. Ljósmyndirnar veita einstaka innsýn í líf þessa harðgerða dýrs í íslenskri náttúru og skapa um leið vettvang til samtals og fræðslu um refinn og stöðu hans á Íslandi.

ÍEster starfar hjá Náttúrufræðistofu Íslands þar sem hún ber ábyrgð á vöktun íslenska heimskautarefsins. Ester hefur rannsakað stofn heimskautarefsins á Hornströndum í nærri 30 ár og tók m.a. þátt í því að stofna Melrakkasetrið á Súðavík árið 2010. Ester hefur unnið náið með Phil Garcia sem og öðrum ljósmyndurum og heimildamyndagerðarfólki í gegnum árin í verkefnum tengdum refnum.

Phil Garcia er franskur atvinnuljósmyndari búsettur á Flateyri. Ljósmyndir hans hafa hlotið alþjóðlegar viðurkenningar og verið sýndar á helstu náttúruljósmyndahátíðum Evrópu.

Frá árinu 2013 hefur Phil rannsakað og skráð harðbýlt líf heimskautarefsins á Íslandi

Saman gáfu þau Ester Rut og Phil Garcia, ásamt Rán Flygenring út bókina Melrakki, the Surviving Arctic Fox, sem telst vera helsta heimildarritið um heimskautarefinn á Íslandi.

Phil er einnig eigandi ferðaskrifstofunnar Explographe sem sérhæfir sig í ljósmyndaferðum. Hann skipuleggur ferðir til að miðla þekkingu sinni og hugmyndafræði til ljósmyndara sem vilja fræðast um íslenskt dýralíf, verndun þess og ábyrga ljósmyndun á því.

Leit

Sláðu inn leitarorð.