← Viðburðir

Sunnudagsganga í Snæfellsjökulsþjóðgarði

Hefst:
06.09.2026 09:30
Lýkur:
06.09.2026 15:30
Staðsetning:
Djúpalónssandur

Sunnudaginn 6. september standa Snæfellsjökulsþjóðgarður og Ferðafélag Snæfellsness í sameiningu fyrir 5-6 klukkustunda göngu í þjóðgarðinum. Gangan er ókeypis og opin öllum. Við hittumst klukkan 9:30 við gestastofuna á Malarrifi sem er endapunktur göngunnar, og sameinumst þar í bíla áður en keyrt er á upphafsstað göngu.

Við hefjum gönguna við Sandhóla (https://maps.app.goo.gl/7LQPuLJH2wEQPL3i7) og ætlum að ganga gömlu vermannagötuna um Beruvíkuhraun í Dritvík og á Djúpalónssand. Þaðan ætlum við að ganga gegnum Einarslón og skoða þar minjar. Þaðan verður gengið meðfram sjávarsíðunni um Mávanes og Þrælavík að gestastofunni á Malarrifi.

Þessi ganga hentur gönguvönu fólki á öllum aldri. Gengið verður á jöfnum og þægilegum hraða og að nokkuð verði um fræðslustopp á leiðinni. Búast má við 10-12 km göngu og allt að sex klukkustundum af útivist. Fyrsti hluti göngunnar er mishæðóttur og á köflum er hraunið úfið og lúmskt undir fótinn og því er eindregið mælt með góðum skóm með ökklastuðningi.

Gamla vermannagatan er óstikuð en auðrötuð og afar sýnileg í hrauninu. Í Drítvík eru margvíslegar minjar en þar var fjölmenn verstöð hluta úr ári þar sem talið er að nokkur hundruð vermenn hafi búið nokkra mánuði í senn. Á Einarslóni var margbýlt og er þar mikið af tóftum. Meðfram sjávarsíðunni eru víða fallegar bergmyndanir og fjölbreytilegar að lit og lögun.

Við gerum ráð fyrir einu góðu hádegisstoppi og auk þess er gott að hafa með nasl á göngunni. Einnig þarf hver og einn að hafa með í byrjun nægjanlegt drykkjarvatn þar sem ekkert rennandi vatn er á leiðinni.

Leit

Sláðu inn leitarorð.