Stjörnuskoðun með geimvísindamönnum á Hellissandi
- Hefst:
- 24.11.2026 18:00
- Lýkur:
- 24.11.2026 20:00
✨ Stjörnuskoðun á þaki Þjóðgarðsmiðstöðvarinnar á Hellissandi ✨
Á morgun, þriðjudaginn 24. nóvember, frá kl. 18:00 til 20:00, verður einstök stjörnuskoðun á þaki Þjóðgarðsmiðstöðvar Snæfellsjökulsþjóðgarðs á Hellissandi.
🔭 Vísindamenn frá NASA, geimferðastofnun Bandaríkjanna, munu leiða stjörnuskoðunina og sýna gestum himinhvolfið með glæsilegum stjörnuskoðunarbúnaði sem Snæfellsjökulsþjóðgarður fékk styrk til að kaupa síðastliðið sumar.
☕ Elja kaffihús verður með opið á meðan viðburðinum stendur.
🔥 Landverðir Snæfellsjökulsþjóðgarðs munu einnig kveikja upp í eldstæði þar sem gestum gefst kostur á að grilla sykurpúða og búa til dýrindis „bræðing“ úr Pólókexi og grilluðum sykurpúðum.
🌟 Við hvetjum alla til að nýta þetta einstaka tækifæri til að skoða stjörnuhimininn í fylgd vísindamanna frá NASA og fræðast um undur geimsins.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest!
📍 Þjóðgarðsmiðstöð Snæfellsjökulsþjóðgarðs, Hellissandi
Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.