← Viðburðir

Fjallið og fjarlægðin - Ganga á Hreggnasa

Hefst:
14.08.2026 14:00
Lýkur:
14.08.2026 16:00

Lagt er af stað við göngubrúna yfir Móðulæk í mynni Eysteinsdals og haldið upp á Hreggnasa, sem rís 469 metra yfir sjávarmál. Leiðin er að mestu aflíðandi og þægileg, en verður brattari þegar nær dregur toppnum. Útsýnið af fjallinu er stórbrotið í allar áttir, en snarbrattir klettar blasa við þegar komið er á tindinn – varúð er því nauðsynleg.

Hittumst við gatnamót Útnesvegar og Eysteinsdalsvegar og gengið að göngubrúnni yfir Móðulæk í mynni Eysteinsdals.

Lengd: gangan tekur um 2 klukkustundir.

Leit

Sláðu inn leitarorð.