← Viðburðir

Aðventustund á Malarrifi

Hefst:
06.12.2026 14:00
Lýkur:
06.12.2026 15:00

🎄 Aðventustund á Malarrifi

📅 Sunnudagurinn 6. desember
🕑 Kl. 14:00–15:00
📍 Gestastofan á Malarrifi

Komdu og eigðu notalega aðventustund með okkur á Malarrifi!

Við byrjum á stuttum og skemmtilegum ratleik um svæðið fyrir alla fjölskylduna. Að ratleik loknum bjóðum við upp á heitt kakó í gestastofunni.

Ef veður leyfir kveikja landverðir undir eldstæðinu utandyra þar sem gestir geta grillað eitthvað sætt og gott.

Og hver veit nema íslenskur jólasveinn líti við og gleðji gesti með nærveru sinni?

🧥 Athugið: Mælt er með hlýjum fatnaði þar sem hluti dagskrárinnar fer fram utandyra.

Öll velkomin!

Leit

Sláðu inn leitarorð.