Á mörkum hafs og hrauns - Ganga milli Arnarsapa og Hellna
- Hefst:
- 30.07.2026 14:00
- Lýkur:
- 30.07.2026 16:00
Upplifðu einstakt landslag á göngu um Neðstagötu, sem liggur um Hellnahraun meðfram strandlengjunni milli Arnarstapa og Hellna. Á leiðinni má sjá áhrif náttúruaflanna á hraunið – sorfna kletta, gjár og stórbrotið útsýni. Við Arnarstapa gefst jafnframt fágæt tækifæri til að skoða ritur á hreiðrum sínum í klettagjám. Svæðið er friðland vegna sérkennilegra klettamyndana við sjóinn.
Hittumst á bílastæði við höfnina á Arnarstapa.
Lengd: gangan tekur um 1,5 klukkustund.