Laust starf þjónustustjóra

Snæfellsjökulsþjóðgarður er í umsjón Umhverfisstofnunar en stofnunin hefur umsjón með yfir 130 náttúruverndarsvæðum. Þjónustustjóri mun starfa í teymi náttúruverndarsvæða þar sem er áhersla á þverfaglega teymisvinnu og víðtæka samvinnu innri og ytri aðila.

Vinnustaðurinn okkar er fjölbreyttur og lifandi. Við störfum í teymum, vítt og breitt um landið eftir vottuðum gæðakerfum. Vinnuvikan er 36 stundir. Við búum yfir mikilli sérfræðiþekkingu og höfum tækifæri til að þróast í starfi og ástunda endurmenntun. Starfsmannafélagið er öflugt og við fylgjum að sjálfsögðu metnaðarfullri umhverfisstefnu sem hjálpar okkur að vera til fyrirmyndar í umhverfismálum.

Umhverfisstofnun leitar að öflugum einstaklingi til að hafa umsjón með þjónustu við gesti Snæfellsjökulsþjóðgarðs. Starfssvið þjónustustjóra er fjölbreytt, meðal annars umsjón og rekstur gestastofa, gerð og miðlun fræðsluefnis og móttaka gesta. Þjónustustjóri verður þátttakandi í þróun og stefnumótun þjóðgarðsins.

Starfsaðstaða þjónustustjóra verður í þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með og ábyrgð á þjónustu við gesti þjóðgarðsins
  • Vaktstjórn í þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi og gestastofu á Malarrifi
  • Umsjón með rekstri húsnæða og sölu varnings
  • Móttaka gesta og viðburðastjórnun
  • Gerð og miðlun fræðsluefnis 
  • Umsjón með vefsvæði og samfélagsmiðlum þjóðgarðsins 
  • Þróun og nýsköpun í þjónustu og öryggismálum í þjóðgarðinum
     

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Brennandi áhugi og /eða þekking á umhverfismálum og náttúruvernd
  • Reynsla eða þekking á fræðslu-, kynningar- og/eða markaðsmálum
  • Gott vald á íslensku og ensku bæði í ræðu og riti
  • Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð tölvukunnátta 

Tengiliðir

Inga Dóra Hrólfsdóttir – inga.dora.hrolfsdottir@umhverfisstofnun.is – 5912000

Þóra Margrét Pálsdóttir Briem – thora.m.briem@umhverfisstofnun.is – 5912000

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags hafa gert.

Næsti yfirmaður þjónustustjóra er þjóðgarðsvörður, en sviðsstjóri sviðs náttúruverndar veitir einnig nánari upplýsingar um starfið auk Þóru Margrétar Pálsdóttur Briem mannauðsstjóra í síma 591 2000.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Gagnkvæmur reynslutími er sex mánuðir við ráðningu. Æskilegt er að þjónustustjórinn geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 19.08.2024

Sækja um hér.

Deila frétt