Leið 20
Hólahólahringurinn
Tími: 1 klst
Hækkun: 1
Lengd: 2,5 km
Krefjandi
Gönguleiðin byrjar við Hólavog og liggur fyrst í átt að Hrafnabjörgum. Gengið er í graslendi eftir fjárgötum, meðfram tjörnum og rústum að gamla bæjarstæðinu Hólahólum. Leiðin liggur svo í átt að sjónum og er gengið til baka meðfram ströndinni, oft í stórgrýti. Hægt er að taka smá krók á leiðinni og fara að Dimmugjótu.