Þjónustugjöld taka gildi
Birt 12.05.2025 · Hákon Ásgeirsson
Náttúruverndarstofnun vill minna á að gjaldtaka þjónustugjalds í Snæfellsjökulsþjóðgarði hefst í sumar eins og áður hefur verið tilkynnt.
Þjónustugjöldin verða samkvæmt 18.gr. gjaldskrár fyrir verkefni og þjónustu Náttúruverndarstofnunar https://island.is/stjornartidindi/nr/dad535b1-8681-4112-a173-9bb359882be6.
Þjónustugjald er innheimt á bílastæðum vegna kostnaðar sem fellur til á svæðinu svo sem vegna þjónustu sem veitt er á svæðinu.
Gert er ráð fyrir að gjaldtaka hefjist í júní næstkomandi á Malarrifi.