← Fréttir

Snæfellsjökulsþjóðgarður vettvangur alþjóðlegs rannsóknarsamstarfs

Birt 16.10.2026 · Stefanía Dröfn Ingólfsdóttir

Alþjóðlegi rannsóknarhópurinn Ecological Pilgrimage (www.ecologicalpilgrimage.com) var við störf í  Snæfellsjökulsþjóðgarði á dögunum. Vinnuferðin var kærkomið tækifæri fyrir hópinn að hittast í sama rými og tíma, en að öllu jöfnu er hópurinn dreifður um heiminn, beggja vegna Atlandsála og allt til Japan.  Rannsóknahópurinn er samansettur af fólki úr náttúruhugvísindum, ferðamálafræði og landfræði og rannsóknir hans lúta að því að styrkja tengsl fólks og náttúru með ýmsum útfærslum af göngum og stuðla þannig að fræðslu um líffræðilegan fjölbreytileika. Rannsóknin er styrkt af Biodiversa+ (https://www.biodiversa.eu/).

Eva Dögg Einarsdóttir yfirlandvörður Snæfellsjökulsþjóðgarðs veitti rannsóknarhópnum góða innsýn í starfsemi þjóðgarðsins. Hópurinn hjó sérstaklega eftir því hversu fjölbreytt starfsemin er og áherslu starfsmanna á nærsamfélagið. Kynningin lagði mikilvægan grunn fyrir vinnuna sem framundan er.

Eftir göngur víða í þjóðgarðinum fundaði hópurinn í þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi og lagði framtíðarplön um rannsóknarsamvinnu, m.a. að skrifa grein um rannsóknir sínar á Snæfellsnesi, svo og að gera þær aðgengilegar í handbók Ecological Pilgrimage sem unnin er jafnt og þétt yfir rannsóknatímann til janúar 2029.

Á Íslandi fer Dr. Elva Björg Einarsdóttir, elvab@hi.is, fyrir hópnum og er í samstarfi við Náttúruverndarstofnun, Vesturbyggð, Náttúrustofu Vestfjarða og Ferðafélag Íslands.

Leit

Sláðu inn leitarorð.