Saxhóll
Birt 17.11.2026 · Björg Viktoría Guðmundsdóttir
Framkvæmdum lokið
Nú er neðra svæðið við Saxhól tilbúið og þakkar starfsfólk Snæfellsjökulsþjóðgarðs Smiðjunni Fönix og þeirra samstarfsfólki kærlega fyrir samstarfið. Landslag hannaði svæðið í framhaldi af tröppunum upp á Saxhól og erum við mjög ánægð með hvernig til tókst. Aðkoman frá bílastæðinu var hellulögð til að auka aðgengi hreyfihamlaðra að áfangastaðnum. Hraunveggur hlaðinn og pallur byggður upp við tröppurnar úr stálristum eins og eru í öðrum mannvirkjum á svæðinu. Hér er um að ræða gott dæmi um að mannvirki, sem falla vel að umhverfinu, geta, auk þess að bæta aðgengi, beinlínis aukið aðdráttarafl vinsælla áfangastaða.