Nasa heimsótti alla skóla á Snæfellsnesi
Birt 27.11.2026 · Björg Viktoría Guðmundsdóttir
Ungir spyrlar Snæfellsness hittu sérfræðinga frá NASA
Við fengum til okkar góða og fróða gesti frá NASA geimferðastofnun Bandaríkjanna sem heimsóttu með okkur frá Snæfellsjökulsþjóðgarði alla skóla á Snæfellsnesi í vikunni. Nemendur voru einstaklega áhugasamir og spurðu um allt milli himins og jarðar og fengu svör. Uppáhalds plánetan okkar hér er jörðin og við teljum skynsamlegt að hugsað sé vel um hana.