← Fréttir

Héraðssaga Snæfellsness

Birt 27.10.2026 · Anna Melsted

Sagnaarfur Snæfellsness í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi

Snæfellsjökulsþjóðgarður og Eyrbyggjusögufélag á Snæfellsnesi hafa tekið höndum saman um að miðla sögu Þórsnesinga, Eyrbyggja og Álftfirðinga með því að bjóða upp á viðburði í tengslum við söguna í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi.

Eyrbyggjusögufélagið hefur síðan 2021 unnið að miðlun Eyrbyggjusögu eins og hún kallast, með því að bjóða upp á viðburði sem tengjast sögunni líkt og leshópa, sagnaskemmtanir, gönguferðir á söguslóðirnar með áhugasömum auk þess sem stjórnarfólk hefur tekið að sér leiðsögn í skipulögðum ferðum. Stærsta verkefni félagsins er um þessar mundir gerð myndrefils sem byggir á sögunni. Kristín Ragna Gunnarsdóttir var fengin til að teikna refil í 7 hlutum þ.e.a.s. jafnmörgum og kvenfélög þau sem starfa á Snæfellsnesi. Kvenfélögin hafa tekið að sér að sjá um saumaskap á hverjum stað og eru hlutar kvenfélags Hellisands og kvenfélags Ólafsvíkur staðsettir í Þjóðgarðsmiðstöðinni.

Ullarband sem notað er við saumaskapinn kemur frá sauðfjárbændum um allt Snæfellsnes og er sérstaklega litað og spunnið fyrir verkefnið.

Saumaskapur hófst fyrri hluta ársins 2026 og er fólk velkomið að taka þátt í þeim viðburðum á hverjum stað en refillinn er einnig staðsettur í Lýsuhólsskóla, Breiðabliki, Stykkishólmi, Helgafellssveit og Grundarfirði.

Snæfellsjökulþjóðgarður miðlar í sýningum sínum náttúrusögu svæðisins, dulmagni, sagnaarfi og búsetusögu en bein tengsl þeirra sýninga er við Eyrbyggjasögu.

Fylgjast má með framvindu refilverkefnisins samfélagsmiðlum og á eyrbyggja.is

Leit

Sláðu inn leitarorð.