Vegurinn út á Öndverðanes lokaður frá 30/6 - 5/7
← Fréttir

Auglýst eftir umsóknum um rekstur Vatns­hell­is í Snæ­fells­jök­uls­þjóð­garði

Birt 30.06.2026 · Ingunn Ýr Angantýsdóttir

Náttúruverndarstofnun, kt. 700924-1570, auglýsir eftir umsóknum frá rekstraraðilum sem óska eftir að reka starfsemi í Vatnshelli í Snæfellsjökulsþjóðgarði og bjóða almenningi upp á skipulagðar ferðir og fræðslu í hellinum allan ársins hring í nánu samstarfi við stofnunina. 

Vatnshellir er hraunhellir staðsettur í Purkhólahrauni í Snæfellsjökulsþjóðgarði og var gerður aðgengilegur almenningi haustið 2009. Tilgangurinn með aðgengi almennings að hellinum er að efla fræðslu og auka við þekkingu og verndun á þeim verðmætum sem hellar og aðrar náttúruminjar eru. 

Við hellinn er þjónustuhús í eigu Náttúruverndarstofnunar sem rekstraraðila er heimilt að hafa til afnota vegna starfseminnar og gerður verður sérstakur leigusamningur um nýtingu þess. Gjaldfrjálst bílastæði fyrir gesti er í nágrenni við þjónustuhúsið. Rekstraraðili skal bjóða upp á daglegar ferðir í hellinn allt árið. Rekstraraðili skal tryggja öryggi gesta og eftirlit með öryggi hellisins, sbr. hrun- eða fallhættu og ástand innviða. Bjóðandi skal bjóða upp á leiðsögn að lágmarki á íslensku og ensku. 

Náttúruverndarstofnun auglýsir því eftir umsóknum frá þeim rekstraraðilum sem vilja bjóða upp á hellaferðir í atvinnuskyni í Vatnshelli. Gerður verður einn sérleyfissamningur samkvæmt lögum um nýtingu á landi í eigu ríkisins í atvinnuskyni nr. 100/2021, við umsækjanda sem uppfyllir nánar tiltekin skilyrði. Samningurinn mun gilda til 1. janúar 2032 með möguleika á framlengingu tvisvar sinnum til eins árs í senn. Samningur mun taka gildi 1. janúar 2027. Ferðir þurfa að hefjast skv. samningi í síðasta lagi 10. janúar 2027. Fjöldi gesta í hellinn á sólarhring skal ekki fara yfir 400 manns. Fjöldi í hellinum hverju sinni skal aldrei fara yfir 54 manns, að meðtöldum leiðsögumönnum. Í hverjum hópi skulu ekki vera fleiri en 12 viðskiptavinir. Þó er heimilt að hafa 16 viðskiptavini í hóp ef honum fylgja tveir leiðsögumenn. Náttúruverndarstofnun áskilur sér rétt á samningstímanum til að fækka leyfilegum gestafjölda í hellinum ef niðurstöður öryggisúttektar, ástandsmats, þolmarkagreiningar eða annarrar rannsóknar, sem framkvæmd er á samningstímanum, mælir með því. 

Leit

Sláðu inn leitarorð.