Föstudaginn 13. nóvember var opnuð ljóðasýningin Ljóð í náttúru í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli og hjá Sjávarrannsóknarsetrinu Vör í Ólafsvík. Börn í Snæfellsbæ tengdu saman menningu og náttúru, ortu ljóð um hafið og lásu upp ljóð út við vita. Sannarlega ljós í myrkrinu! Hjá Þjóðgarðinum voru sett skilti með ljóðum á þrjá vita sem eru innan Þjóðgarðsins.
Cýrus Danelíusson afhjúpaði skiltin við Öndverðarnesvita en Cýrus þekkir Öndverðarnes vel og dvaldi þar um hríð. Börn úr 4. bekk Grunnskóla Snæfellsbæjar lásu upp ljóðin. Þess má til gamans geta að þegar Cýrus var á þeirra aldri hljóp hann tvisvar í viku út á Öndverðarnes frá Hellissandi til að sækja mjólk fyrir fjölskylduna!
Í tilefni ljóðasýningarinnar efndi Vör til ljóðasamkeppni meðal nemenda Grunnskólans og var þemað sjór og sjávarlíf. Alls bárust 37 ljóð og þriggja manna dómnefnd valdi 8 úrvalsljóð og þar af tvö framúrskarandi. Nemendur lásu upp ljóð sín við opnun sýningarinnar í Vör við góðar undirtektir gesta. Ljóðin 8 verða hluti af sýningu Varar og eiga nemendur þakkir skyldar fyrir frábæra þátttöku í ljóðasamkeppninni og hrós fyrir sköpunargáfu sína. Aðstandendur sýningarinnar þakka öllum sem komu og skemmtu sér með þeim við opnunina en jafnframt gefst þeim sem ekki komust, tækifæri til að njóta ljóðanna sem börnin ortu og birtast þau hér með.
Verkefnið er styrkt af Menningarráði Vesturlands
Ljóðin tvö sem bera þóttu af voru:
Hrár fiskur, steiktur fiskur,
soðinn fiskur, lifandi fiskur,
fiskur í raspi
og fiskur í sjó.
Sigurður Reynir Rúnarsson, 6. bekk
Hafið mikla
Sjórinn fagri,
glampar,
þegar sólarljósið
kemur.
Lýsir yfir hafið með
fögrum sólargeislum.
Hvíti mávurinn flýgur yfir
sjó og strendur,
í hafdjúpinu mikla eru
ótal stórir fiskar.
Azra Crnac, 7.bekk
Önnur sex úrvals ljóð, í þeirri röð sem höfundar lásu þau upp:
Sjórinn
Hann er blár
Hann er kaldur
Hann er saltur
Hann er grunnur
Hann er allsstaðar
Við hoppum í honum
Við syndum í honum
Fiskarnir lifa í honum
Skipin sigla á honum
Þetta, þetta er sjórinn.
Silja Ólafsdóttir, 4. bekk.
Hafið
Hafið blátt er hátt,
steinar liggja í fjöru djúpsins.
Fiskarnir eru með stór augu,
feitir sumir mjóir.
Sjófuglar borða fimm fiska og við fáum afganginn.
Elmar Ingi Sigurðsson, 5.b.
Sjórinn
Sjórinn er fagur,
Fagur eins og sólarljósið.
Sjórinn er grimmur eins og kölski.
Sjórinn sýnir tákn,
Tákn eins og ást.
Sjórinn er djúpur,
Djúpur eins og tilfinning
Ólöf Gígja Hallgrímsdóttir, 7. bekk
Lúðan
Lúðan er lúðinn í hafinu en menn eru bara menn.
Sumir menn eru sjómenn.
Skötuselurinn er blanda af
skötu og sel.
Steinbíturinn steininn étur,
fallegt ljós á kolli hans lokkar að bráð hans.
Birkir Snær Barkarson, 5.bekk
Án titils
Skatan er svo glöð,
því að hún er svo flöt.
Þarna er smokkur sem rímar við kokkur.
Þarna er lúða sem er sú prúða.
Hvar er krabbinn?
Hann fór á labbinn.
Þarna er ýsa, er hún ekki skvísa?
Hvað er þorskur? Er það froskur?
Sigurberg Óskar Rúnason, 5. bekk
Fiskur í sjó
Hver býr í sjónum
Hlustið nú vel
Þar búa fiskar og höfrungastél
Fiskarnir synda og synda í hóp
Þannig er fiskur í sjó.
Júlía Karen Fannarsdóttir 5. bekk