Snæfellsjökulsþjóðgarður
Bílastæði
Áningabekkir

Saxhóll er 40 metra hár, formfagur gígur. Tröppur liggja upp á toppinn og því nokkuð auðvelt að ganga upp og njóti útsýnisins yfir hraunbreiður, hafið og til Snæfellsjökuls. Þar er líka sjónskífa.

Tröppustígurinn var tilnefndur til fernra verðlauna árin 2017–2018, Nordic Architecture Fair Award í Gautaborg (hlaut sérstaka viðurkenningu), Hönnunarverðlauna Íslands, Menningarverðlauna DV og Rosa Barba International Landscape tvíæringsins og hlaut þau verðlaun í september 2018.

Gígurinn er einstaklega viðkvæmur fyrir traðkið og því mikilvægt að fylgja gönguleiðum og fara ekki út fyrir útsýnis- og áningastaði.