← News

Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull 20 ára

Published 28.06.2021 · Rut

Mánudaginn 28. júní á þessu ári voru liðin 20 ár frá stofnun Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls. Í tilefni tímamótanna stóð Þjóðgarðurinn fyrir 10 daga afmælishátíð með fjölda ólíkra viðburða víðsvegar um Þjóðgarðinn. Dagskráin endaði með veglegri afmælishátíð á Malarrifi. Meðal viðburða í afmælisvikunni voru gönguferðir á ýmsa fjallatoppa innan Þjóðgarðsins, fræðslugöngur, minjavörður mætti á staðinn og fjallaði um Gufuskála og Náttúrustofa Vesturlands fræddi gesti um náttúrufar innan þjóðgarðsins. Malarrifsviti var opinn undir leiðsögn landvarða og tvo daga var bygging nýrrar Þjóðgarðsmiðstöðvar á Hellissandi sýnd undir leiðsögn. Þá var dagskrá og leikir fyrir yngri kynslóðina og margt fleira.

Aðalhátíðin hófst við Gestastofuna á Malarrifi klukkan 14:00 sunnudaginn 27.júní. Umhverfisráðherra flutti ávarp og undirritaði nýja reglugerð Þjóðgarðsins áasamt stækkun hans. Þjóðgarðsvörður hélt erindi og Karlakórinn Heiðbjört söng við hátíðina.

Að loknum erindum hófust ýmsir dagskráliðir í Malarrifslandinu. Bæjastjóri Snæfellsbæjjar gekk með gesti frá Svalþúfu að Malarrifi, sögustund var í Salthúsinu á Malarrifi, en þar er jafnframt sýning sem nemendur Grunnskólans á Lýsuhóli settu upp fyrir nokkrum árum og viðhalda árlega. Hestar voru leiddir undir börnum sem einnig gátu tekið þátt í ýmsum leikjum á leiksvæði sem hafði verið komið upp. Þá voru veitingar í boði Þjóðgarðsins og sá kvenfélagið Sigurvon í Staðarsveit um veitingarnar. Áætlað er að um 350 manns hafi mætt á hátíðina sem fór hið besta fram.

Hin eiginlega afmælisdag 28. júní var öllu rólegra í Þjóðgarðinum, enda bar daginn upp á mánudag. Veitingar voru í boði á gestastofunni á Malarrifi fyrir gesti þjóðgarðins og starfsmenn sporðrenndu fjölda pönnukaka í tilefni dagsins samhliða frágangi á hátíðasvæðinu. Sannarlega skemmtilegir tímir og eftirminnilegir.

Fréttir
Search

Enter a search term.