Sumardagskrá Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls
Published 16.06.2006 · Rut

Sunnudaginn 18. júní verður refagreni í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli heimsótt. Vonandi verða íbúarnir ófeimnir og láta sjá sig líkt og þeir gerðu í fyrra. Önnur refaskoðunarferð verður síðan í júlí.

Reglulegar gönguferðir Þjóðgarðsins verða á tímabilinu 27. júní til 20. ágúst. Göngur verða fjórum sinnum í viku og barnastund einu sinni.

Á laugardögum er barna- og fjölskyldustund við gestastofuna á Hellnum og gönguferð frá Svalþúfu að Lóndröngum.
Á sunnudögum er gengið um Búðir, á þriðjudögum um Djúpalónssand og nágrenni og á fimmtudögum er boðið upp á óvissuferð.

Auk þessara föstu dagskrárliða eru nokkrar sérferðir; helgigöngur um Jónsmessu, blómaskoðun, heimsókn að refagreni og menningarminjar verða skoðaðar.

Haldið verður upp á 5 ára afmæli Þjóðgarðsins 28. júní og þá verða verðlaun afhent í samkeppni vegna hönnunar þjóðgarðsmiðstöðvar sem rísa mun á Hellissandi. Þátttaka í ferðir Þjóðgarðsins er gestum að kostnaðarlausu. Nálgast má dagskrána hér og kort hér.