← News

Störfum fjölgar ört í þjóðgarðinum undir jökli

Published 10.03.2023 · thordis
<!-- wp:paragraph -->
<p>Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull vex og dafnar vel og störfum fjölgar. Árið 2021 voru mörk þjóðgarðsins útvíkkuð og í ár mun nýja þjóðgarðsmiðstöðin opna á Hellissandi. Í takt við aukið umfang verkefna í þjóðgarðinum fjölgar starfsfólki jafnt og þétt og eru nú sjö starfsmenn í fullu starfi í garðinum og í sumar bætast við sumarlandverðir og þá eru ársverk í þjóðgarðinum orðin um níu, fyrir utan verktaka sem koma að uppbyggingu innviða, ræstingu og vetrarþjónustu í þjóðgarðinum.</p>
<!-- /wp:paragraph -->

<!-- wp:heading {"level":1} -->
<h1 class="wp-block-heading">Opnun þjóðgarðsmiðstöðvar 24. mars nk.</h1>
<!-- /wp:heading -->

<!-- wp:paragraph -->
<p>Framundan eru fjölbreytt og krefjandi verkefni sem starfsfólk þjóðgarðsins leggur allan sinn metnað í að takast á við. Mesta orkan þessa dagana fer í undirbúning opnunar nýju þjóðgarðsmiðstöðvarinnar á Hellissandi. Við hlökkum mikið til að opna dyrnar á því stórkostlega húsnæði þann 24. mars næstkomandi og bjóðum ykkur öll velkomin. Orkuna sækjum við starfsfólkið að sjálfsögðu í jökulinn og Bárður Snæfellsás heldur verndarskildi yfir okkur, segir Hákon Ásgeirsson þjóðgarðsvörður.</p>
<!-- /wp:paragraph -->

<!-- wp:image -->
<figure class="wp-block-image"><img src="https://www.ust.is/library/sida/Nattura/Snaefellsjokull/%c3%bej%c3%b3%c3%b0gar%c3%b0ur%20starfsf%c3%b3lk.jpg?proc=frett1000" alt=""/></figure>
<!-- /wp:image -->

<!-- wp:paragraph -->
<p>Starfsfólk þjóðgarðsins:&nbsp;<em>Guðmundur Jensson landvörður, Jón Grétar Borgþórsson, landvörður, Mandy Nachbar þjónustufulltrúi, Rut Ragnarsdóttir þjónustustjóri, Páll Marel Jónsson landvörður, Hákon Ásgeirsson þjóðgarðsvörður og Eva Dögg Einarsdóttir yfirlandvörður</em></p>
<!-- /wp:paragraph -->
Fréttir
Search

Enter a search term.